Andrés Ingi ráðinn framkvæmdastjóri DÍS

20. janúar 2025

Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands (DÍS). Hann hefur þegar hafið störf. DÍS er óháð landssamtök sem beita sér fyrir bættri velferð dýra. Sambandið stendur vörð um lögvernd dýra og stuðlar að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum. DÍS var stofnað þann 13. júlí 1914 og fagnaði því 110 árum á síðasta ári.

Andrés Ingi býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á vettvangi stjórnmála. Hann var þingmaður Pírata frá árinu 2021, þingmaður Vinstri grænna á árunum 2016-2019 og sat þess á milli sem þingmaður utan þingflokka. Andrés Ingi er með meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá háskólanum í Sussex.

Sem þingmaður hefur Andrés Ingi beitt sér ötullega fyrir málefnum mannréttinda, umhverfisverndar og dýravelferðar sem stjórn DÍS horfði sérstaklega til við ráðningu hans sem framkvæmdastjóra sambandsins. Framkvæmdastjóri DÍS ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins, fjáröflun, stefnumótun í samstarfi við stjórn og kemur fyrir hönd DÍS í opinberri umræðu.

„Við bjóðum Andrés Inga hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins. Starf Dýraverndarsambandsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum, vitund almennings er sífellt að aukast og verkefnum að fjölga, þannig að við sjáum mikil tækifæri í því að styrkja félagið á næstu misserum,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands.

Síðustu mánuði hefur fjöldi fólks bæst í hóp Dýraverndara sem styðja Dýraverndarsambandið með reglulegu framlagi. Sá stuðningur er ómetanlegur og hefur gert DÍS mögulegt að ráða starfsmann til efla sambandið í baráttunni fyrir bættri velferð dýra í landinu. Hægt er að gerast Dýraverndari á www.styrkja.is/dyravernd

Til baka

Previous
Previous

Dýr þurfa skjól á hættutímum

Next
Next

Meirihluti óánægður með ákvörðun um nýtt leyfi til veiða á langreyðum samkvæmt nýrri könnun Maskínu