Um Dýraverndarsambandið
Dýraverndarsamband Íslands (Dýraverndunarfélag Íslands), DÍS, var stofnað þann 13. júlí 1914 og er frjáls og óháð landssamtök dýravina (NGO). Félagar eru um 700.
DÍS stendur vörð um lögvernd dýra, stuðlar að góðri lagasetningu og reglubundnu eftirliti til verndar dýrum. Sambandið leggur áherslu á miðlun upplýsinga og fræðslu og lætur sig allt varða sem snertir meðferð dýra og velferð þeirra.
Dýraverndarsambandið á fulltrúa í fagráði um velferð dýra og á fulltrúa í samstarfsráði Matvælastofnunar.
Sambandið er aðili að Eurogroup for Animals og er einnig aðili að Landvernd.
Meginhlutverk DÍS samkvæmt lögum félagsins er:
Að standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum.
Að vinna að bættri velferð dýra, taka virkan þátt í umræðu um málefni þeirra á opinberum vettvangi og stuðla að málefnalegri umræðu um dýravelferð.
Að beita sér fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun um góða meðferð dýra og hvetja skóla, félagasamtök og einstaklinga alla að auka og efla velferð þeirra.