Dýraverndari ársins 2016


DÝRAHJÁLP ÍSLANDS

Dýrahjálp Íslands hlýtur viðurkenninguna fyrir frábært starf í þágu dýra í mörg ár og fyrir að breyta sýn almennings á líf eldri gæludýra, en félagið hefur fundið þúsundum dýra ný heimili. 

​Félagið var stofnað með það markmið að þegar eldri gæludýr missa heimili sín sé boðið upp á miðl­un með gæludýr til að finna fyrir þau ný heimili, í stað þess að farið sé með þau til dýralæknis til að aflífa þau.

Valgerður Valgeirsdóttir formaður Dýrahjálpar tók við viðurkenningunni Dýraverndari árs­ins 2016 fyrir hönd Dýrahjálpar Íslands.

Til baka